Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
Að týna hlutum
26.11.2008 | 16:12
Svei mér þá ég held að búálfarnir mínir hafi aðeins minnt á sig um daginn. Þannig var að ég týndi ipodnum mínum, pennaveskinu en í því var diktafónninn minn (rosalega mikilvægt tæki hjá mér þessa dagana) og síðan dagbókinni minni (nb. allt skipulagið mitt í henni) . Ég kenndi stóra stráknum um hvar ipodsins. Ipodin var í bílnum og strákurinn með hann í láni. Ég er nýbúin að uppgötva að hlusta bara á góða tónlist þegar ég er að keyra, og ipodin kom sér vel þegar ég var að reyna að vera fréttalaus. En allavega drengurinn var með bílinn og ég var sannfærð um að ipodin hafi verið þar og honum hafi verið stolið. En ég var s.s búin að leita af öllum þessum þremur hlutum en fann ekki neitt...Var alveg ótrúlega svekkt yfir að finna ekki ipodin, var alveg sannfærð um að honum hefði verið stolið.......Síðan liðu nokkrir dagar og þá fann ég fyrst dagbókina hún var í bílnum, pennaveskið fannst degi síðar líka í bílnum og að lokum fann ég ipodin, en hann var ekkkki í bílnum, hann var allt í einu komin inn og bara lá á borðinu og ég get svarið fyrir það að ég var mörgu sinnum búin að ganga fram hjá þessu borði. Álfarnir mínir hljóta að hafa verið að stríða mér Hlutirnir voru alveg á öfugum stað við það sem ég hélt að ég hafði séð þá síðast. Mér finnst samt alveg ótrúlegt hvað manni er annt um hlutina sína núna. Ég er alveg að missa mig ef ég "held" að ég sé búin að tína einhverju. fyrir breytingu (finnst fáránlegt að kalla þetta kreppu) þá róaði ég mig alltaf með því að ég myndi nú bara kaupa nýtt....svona ef ég týndi einhverju.....En núna getur maður bara ekki keypt neitt nýtt, eins gott að halda í allt þetta gamla góða. Ég er reyndar alveg rosalega góð í að týna einhverju tímabundið !, gsm síminn minn er ótrúlega góður í því að verða viðskila við mig og bíllyklarnir, já þeir, ég held að þeir hoppi nú bara stundum af hillunni sem þeir eiga að vera á. En þetta með að tína og finna aftur ..... verð að fara að passa betur upp á hlutina núna .... ég verð alltof pirruð að finna þá ekki .... og núna get ég ekki róað mig með því að ætla mér bara að kaupa nýtt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Trúnaðarstörf
25.11.2008 | 20:16
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áheyrnarfulltrúar
25.11.2008 | 13:20
Þetta er þjóðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég styð Geir
24.11.2008 | 22:10
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Árás á lögregluna
23.11.2008 | 17:05
Þetta kemur fram á vef RUV (leturbreytingin er mín)
Mótmælendur við Hverfisgötuna brutu að minnsta kosti 5 rúður á lögreglustöðinni, beittu gangstéttarhellu til að brjóta glugga í aðalhurð hússins og sóttu síðan stærðar viðardrumb og reyndu að brjóta með honum innri hurðina í anddyri lögreglustöðvarinnar. Þegar þangað var komið brá lögreglan á það ráð að beita piparúða gegn fjöldanum. Síðan tóku sérsveitarmenn sér stöðu fyrir framan húsið og vörðu það. Þá kom til handalögmála. Álfheiður segist ekki geta lagt mat á það hvort mótmælendur hafi gengið of langt. Steingrímur J Sigfússon, formaður vinstri grænna, segir Álfheiði ekki hafa farið yfir strikið. Vinstri grænir hafi tekið þátt í mótmælunum almennt og á meðan menn geri ekkert ólöglegt sé ekkert við þá að sakast. http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item238429/
Sama á hvaða forsendum maðurinn var handtekin finnst mér þessi hegðun ömurleg. Að ráðast að lögreglunni á þennan hátt er bara ljótt. Hefur einhver pælt í því hvað hefði gerst ef lögreglan hefði hleypt fólkinu inn í húsið. Og að þingmaður hafi tekið þátt í þessum mótmælum finnst mér fáránlegt. Að ráðast að mönnum sem eru að sinna opinberum skyldum sínum er ekki sæmandi þingmanni. Í tilvitnuninni hér að ofan væri hægt að segja að Álfheiður og Steingrímur væru lýðskrumarar (skv. íslenskri orðabók er Lýðskrumari stjórnmálamaður sem talar eins og fólk vill heyra; pólitískur æsingamaður)
Mótmæli eru góðra gjalda verð en styður fólk virkilega svona hegðun.
Fráleitt ólögmæt handtaka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Barnahátíð
22.11.2008 | 21:38
Frábært framtak hjá Reykjanesbæ í dag að hafa barnahátíð. Dagurinn hjá okkur hjónakornunum fór í að leyfa Guðmundi að njóta sín. Fyrst var farið í DUSS hús í bíó, og horft á Didda og dauði kötturinn, honum fannst myndin mjög skemmtileg og spennandi. Síðan fórum við í Fjörheima á Vallarheiði og það fannst mínum fjör, diskótek og alles --- hann dansaði reyndar ekki -- en hljóp þeim mun meira, fór í billjard og fl. og fl. síðan fórum við í hjólaskautahringinn. Hann prufaði línuskauta í fyrsta sinn, heppinn að fá lánaða skautana sem bróðir hans átti og keyptir voru í Ameríkunni hér um árið þar var boðið upp á kaffi og vöfflur með súkkulaði, það fannst honum gott. Hann þarf nú smá meiri æfingu á skautunum en það hlýtur að koma, þarf að fá hjólaskautasnillinginn bróður sinn til að kenna sér. síðan var farið í næsta hús við hliðina en þar var inni leiktæki fyrir börn, svaka skemmtilegt. Enduðum síðan barnadagskránna á því að heimsækja Skessuna, hún er algjört æði í hellinum sínum. Kórónuðum síðan daginn með því að fara í barnaafmæli. Alveg draumadagur hjá 5 ára strák og kvöldið var ekki síðra, einn af uppáhaldsþáttunum hans í sjónvarpinu -Spaugstofan - (þeir virðast ná til allra aldurshópa) og nú er bara að koma honum í bólið.....
Barnahátíðin verður aftur næsta laugardag og hvet ég fólk til að taka þátt. Næsta laugardag förum við í það sem við komumst ekki yfir í dag, af nógu er að taka.
Til að sjá dagskránna smelltu á linkinn hér fyrir neðan.
http://reykjanesbaer.is/displayer.asp?cat_id=1037&module_id=220&element_id=12219 |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég styð lögregluna
22.11.2008 | 19:57
Mér finnst til skammar að fólk ráðist að lögreglunni. Hvers konar lýður er þetta. Að mótmæla er í lagi en að gera það á þennan hátt er ekki til eftirbreytni. Ég ætla að vona að þeir sem standa fyrir mótmælum á Austurvelli hvetji fólk til að mótmæla án ofbeldis á næsta fundi. Hverju er áorkað með því að ráðast að lögreglunni, ber ekki öllum að fara að lögum og reglum, eða eiga mótmælendur að fá aðra og betri meðhöndlun. Viljum við ekki að lögreglan haldi uppi lögum og reglum. Hefur fólk hugsað til enda hvernig fer ef þetta heldur áfram svona. Ég hef áhyggjur að mótmælin séu að fara úr böndunum, reiðina þarf að höndla betur og virkja á annan hátt. Með því skilar hún betri árangri og mótmælendur fá fleira fólk í lið með sér. Það er örugglega fólk þarna úti sem vill mótmæla ástandinu en vill ekki láta kenna sig við þá hegðun sem sást við lögreglustöðina í dag.
Ég vona að fólk upplýsi börn sín um það að sú hegðun sem sást við lögreglustöðina í dag sé ekki til fyrirmyndar, börnin þurfa að vita að slík hegðun er eitthvað sem ber að varast
Fanganum sleppt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fréttaleysi
20.11.2008 | 23:12
Mér gengur kannski of vel að horfa ekki á fréttir. Nú finnst mér ég vera að missa af svo miklu, maður þarf náttúrulega að vera viðræðuhæfur og vel upplýstur Ég held ég fari bara að fylgjast aftur með. Allavega fréttum á RUV, hef ekki lagt neina áherslu á að horfa á þær undanfarna daga og þá missir maður af svo miklu og Kastljósið er oft gott, hef ekki getað látið moggann alveg í friði, flétti honum á hverjum morgni, en bara flétti, í stað þess að lesa hann upp til agna. En þarf kannski að passa mig bara á missa mig ekki í fréttirnar....en er allavega búin að horfa á tíu fréttir á RUV + núna ......
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skjár1
20.11.2008 | 22:50
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ertu upplýstur
15.11.2008 | 01:40
Heyrði "smá" fréttir í dag, auðvitað í bílnum. þar var ung kona (ímynda mér að hún hafi verið ung ) spurð um það hvort hún fyndi fyrir kreppunni, svarið var já ég get ekki keypt mér úlpu ! Það er s.s kreppan. Maður var spurður að því hvort hann ætlaði að fara á mótmælin á morgun, svarið var JÁ...þá var spurt veistu hverju verið er að mótmæla....það koma bara þögn...hann vissi það ekki...samt ætlaði hann að fara að mótmæla. Annars gekk mér rosalega vel með EKKI fréttir....horfði ekkert á sjónvarpsfréttir í dag !!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)