Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Jólalestur

Las bók Arnaldar, Harðskafi um jólin, fín bók.  Mér fannst samt fyndið hvað Erlendur er allt í einu orðin betri maður.....ekki eins truntulegur....passar betur fyrir Ingvar núna! ...Arnaldur kannski ekki alveg trúr sjálfur sem þarna...breytir Erlendi til að fitta betur í bíó....

Er núna að hlusta á hljóðbók A Thousand Splendid Suns(þúsund bjartar sólir) eftir Khaled Hosseini...frábært að hlusta á bókina..hún er góð og mér liggur eiginlega á að klára hana til að vita hvernig allt fer!  Ég Hlusta á hana í bílnum og svo er ég búin að setja hana inn á ipodin get bara legið í rúminu, slakað á og hlusta á góða bók, þreytist ekkert í höndunum!....
Ég las flugdrekahlauparann eftir sama höfund og hún var frábær..mæli með þessum bókum. 
Ég pantaði hljóðbókina á Amazon og á eftir að gera meira af því ........ þvílík snilld að geta hlustað bara á bók á meðan maður keyrir  í bæinn.....óskaði þess í dag þegar ég fór í bæinn að ferðin tæki lengri tíma ----bókin var svo spennandi.!!!


Hvít jól

Jólin eru yndislegur tími.....ég fór í kirkju á aðfangadag í fyrsta skipti.  Ég fór með Guðmund í barnamessu klukkan fjögur. - frábær tímasetning fyrir börnin.....Þetta var yndisleg stund og ég vona bara að það verði árlegt í kirkjunni minni.....barnamessa klukkan fjögur...ég mun mæta....(hlýt að geta fundið eitthvað BARN til að fara með, þegar mín verða öll orðin fullorðin)  

Það var æðislegt að fá snjó á aðfangadag,  og ekki var verra þegar snjóaði enn meira á jóladag. Guðmundur var vaknaður snemma á jóladagsmorgun og við vorum komin út í snjóinn um ellefu -- með nýja stýrissleðann.....við vorum ein í brekkunni -- fólk ekki á ferli svona snemma....ég held ég hafi séð þrjá bíla, einn mann að hlaupa, einn úti að ganga með hundinn sinni og hjón í göngutúr. 

Ég vona bara að fólk njóti hátíðarinnar og eigi góðar stundir. GLEÐILEG JÓL........


Ég elska búálfa

Ég ætla aldrei aftur að tala illa um búálfa, aldrei ! og ætla hér með að lýsa því yfir að þeir eru æðislegir. Ég þori ekki annað en að vera jákvæð gagnvart þeim.......því ég lenti í ótrúlegu í morgun og ég hef enga skýringu nema að þeir hafi verið reiðir út í mig Frown og elt mig út í bíl.......Þannig var að ég fór að bera út moggann með Hildi og þegar ég fór í næst síðasta húsið þá skyldi ég lyklana eftir í svissinum, drap á bílnum ... hafði rafmagnið á s.s útvarpið var á og ljósið inn í bílnum.....ég bara hljóp út úr bílnum skutlaði mogganum í húsið kom að bílnum rétti höndina að hurðinni.og...þá læstist bara bílinn..já ótrúlegt læstist og lyklarnir  inni... og búálfarnir enn með hina bíllyklana....þannig að það var ekki hægt að komast inn í bílinn.....eins gott að hundurinn var úti en ekki inni.....ég prufaði lögguna hún gat ekki aðstoðað en gaf mér upp símanúmer hjá fyrirtæki sem reddar svona hlutum en þar svaraði enginn..(enginn mættur svona snemma) .þá hringdi ég í eiginmanninn, hann var ótrúlega rólegur..(var svo tillitsamur við konuna þar sem hún var að fara í stórt próf)....hann fór og reyndi að opna bílinn.....það gekk ekki..þar er ekki eins auðvelt á þessum nýju bílum og var á gamla subarunum okkar Tounge Þannig að það endaði með því að það þurfti að fara í umboðið og kaupa nýjan lykil...og þegar við náðum í bílinn 12 tímum síðar átti ég von á rafmagnsleysi og alles  en minn flaug bara í gang.  Get ekki fundin neina skýringu á þessu nema þá að það hafi setið búálfur á öxlinni á mér í gær þegar ég var að skammast yfir þeim.....svo núna elska ég búálfa....(vona að þeir nái þessu) Pinch

Var svo í heimaprófi í allan dag...þvílíkt próf..var að frá 9 í morgun til fimm...tók þrjár pissupásur og örstuttan mat.....kennarinn hélt að þetta tæki þrjá tíma..en það var sko ekki raunin ...veit ekki um neinn sem var þrjá tíma....kannski kennarinn þurfi að endurskoða þetta...en þetta var hennar fyrsta heimapróf...héldum að við myndum græða á því en það var nú ekki....BARA erfitt

 


Búálfarnir--- aftur að stríða mér

Já ég get svo svarið það þeir láta mig ekki friði.......þeir hljóta að fá eitthvað mikið út úr því að taka lyklana mína.....núna eru þeir með bíllyklana mína og lyklana af kistunni minni...gæti reyndar alveg trúað því að þeir ættu heima í kistunni.....Kistuna fékk að gjöf frá frænda mínum en langaamma mín og nafna átti hana, kistan er um 120 ára gömul...lykillin er með nafninu okkar á þannig að ég vill endilega finna hana...kannski ekki hægt að meta hann í peningum en bíllykilinn veit ég að kostar helling að láta smíðaCrying .  Verst að báðir þessir lyklar eru búnir að vera tíndir ansi lengi.....ætli búálfarnir séu kannski bara búnir að tína þeim líka....O my God hvar ætli lyklarnir séu þá niður komnir....En ég vona allavega að þeir skili mér því sem þeir eru búnir að taka á þessu ári þó að það verði ekki fyrr en bara á gamlársdags...Wizard  Ég fer ekki fram á mikið, bara að þeir skili til baka því sem þeir eiga ekki.......

Nútíma veðurofsi - fljúgandi ellilifeyrisþegar

Brjálað veður....fyndið þetta með hvað er að valda veseni í dag vegna veðurofsans....það eru fljúgandi trampólín, fljúgandi ísskápur, fljúgandi auglýsingaskilti og fljúgandi köttur (olli reyndar held ég ekki tjóni, nema þá kannski andlegu hjá þeim sem fékk hann á stofurúðuna hjá sér) ......En skil ekki þetta með að þurfa að sækja börnirn í skólann vegna veðurs.....ef þau eru komin í skólann hvort eð er af hverju ekki að leyfa þeim að klára daginn ....kannski í lagi að láta sækja þau ef það væri snjókoma og allir vegir að lokast....en að senda alla foreldar af stað til að sækja börnin vegna roks finnst mér óþarfi.......þegar ég kom að sækja Hildi í skólann eftir að Rás 2 sagði mér að löggan vildi að börnin væri sótt í skólann......

Heimasíðugerð

Er búin að vera að vinna heimasíðu í Internetfagi í skólanum.  Það er búið að vera mjög skemmtilegt.  Ég ákvað að hafa heimsíðuna um Lesblindu, gerði fyrst ritgerð um sama efni. Við þessa vinnu hef ég komist að því að það er hægt að nálgast alveg ótrúlega miklar upplýsingar um lesblindu á netinu.  Aðferðirnar sem eru kynntar á vefnum eru allt frá því að lesblinda sé vandamál í miðeyra sem hægt sé að leysa með skurðaðgerð til þess að líta megi á lesblindu sem náðargáfu sem hægt sé að slökkva og kveikja á að vild. En það kom mér á óvart að þessar síður sem eru um lesblindu eru ekki allar hægt aðlagaðar fyrir lesblinda s.s ekki hægt að breyta letri, lit og svoleiðis.  Þarf reyndar að afsaka mína síðu, þar sem þetta er ekki hægt þar, en ég hef afsökun þar sem ég mátti bara vinna hana í html með smá aðstoð í frontpage.  Alla vega er ég ánægð með síðuna mína en við sjáum til hvort hún fellur í góðan jarðveg hjá kennaranumErrm

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband