Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Snjór

Vá hvað snjóar. Þegar ég vaknaði í morgun var allt hvítt yfir, maður hélt að þetta væri bara svona smá til að minna okkur á að veturinn væri í nánd, en hver átti von á að síðan færi bara að kyngja niður snjó.....það er s.s komin vetur .... það hefur bara gerst örsjaldan á minni ævi svo ég muni að það hafi snjóað fyrir afmælisdaginn minn Wink...Hvað ætli þetta allt boði, efnahagskerfið er í klessu, haustið var ansi stutt ef það koma þá eitthvað, fannst dagurinn í dag vera alveg æðislega fallegur haustdagur, og ég sem elska haustið og haustið á ekki bara að vera í einn dag Errm  Síðan heimsækir veturinn okkur ansi snemma. Getur þetta nokkuð nema farið upp á víð , ég bara spyr.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband