hvað er í gangi....

Nú fyrst óttast ég að allt sé að fara til helv.... Trúir Ingibjörg því virkilega að Jóhanna sé hæf til að vera forsætisráðherra, eða er hún í enn einum vinsældarleiknum. . Samfylkingin myndi stjórnar landinu eftir skoðanakönnunum, eitt í dag og annað á morgun. Sé ekki að hún hugsi málin til enda og beri hag þjóðarinn til framtíðar fyrir brjósti, Samfylkingn hugsa um sig og sínar vinsældir fyrst og fremst. Framsóknarflokkurinn, ég var farin að fyllst smá von með þá en að hlusta á Höskuld á þingi áðan þá misti ég nú alla trú á þeim. Frjálslyndir hvað eru þeir eiginlega. Vinstri Grænir, jú Steingrímur og Katrín eru fín en guð hjálpi okkur ef Ögmundru eða Álfheiður verða ráðherrar. Ég ber ugg í brjósti um framhaldið ég vona svo innilega að nýrri stjórn beri gæfa til að bæta úr málum og hugsi um hag þjóðarinnar allrar í nútíð og framtíð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Þú ert ekki í lag, hefurðu ekki tekið eftir því að Geir Haarde er slakasti forsætisráherra Íslandssögunnar, hvernig dettur þér í hug að Jóhanna Sig reynslumesti þingmaðurinn sem nýtur virðingar og vinsælda ráði ekki við jobbið í nokkrar vikur ? 

Skarfurinn, 26.1.2009 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband